*Guðrún*

Nafn: Guðrún María
Fædd: 18. ágúst 1983

*Eldra Blogg*

september 2004 október 2004 nóvember 2004 desember 2004 janúar 2005 febrúar 2005 mars 2005 maí 2005 ágúst 2005 september 2005 október 2005 nóvember 2005 desember 2005 febrúar 2006 mars 2006 apríl 2006

*Vinir og Vandamenn*

Eygló
Hildur
Gunni fóstra
Aðal Skutlan
Harpa vinkona
Rakel Rut og Einar í Köben
Fallega fólkið
Einir Einis
Mattý
Birgit stórsnillingur
Tvíburarnir
Smári
Jón Helgi
Eydís frænka
Andri Hugo

*Litlu Krílin*

Mikael
Daníel Franz
Reynar Hlynsson
Viktor Andri

*Á Döfinni*

22. sept - Tvíbbarnir ammli
25. sept - Ammlisveisla tvíbbanna
25-26. sept - Frí helgi
2. nóv - Elfa Ásdís ammli
10. nóv - Kristín ammli
11. nóv - Mattý ammli

*Ýmislegt*

Íslandsbanki
Eyjafréttir
Eyjar.net
Þessi köttur er snilld!
Önnur kattarsyrpa
Þvílíkt krúttlegt!
Kreisí kettir!

*mánudagur, apríl 17, 2006*

Jæja, er eitthvað að frétta síðan síðast?

Já... ansi góð þáttaka í könnuninni hér fyrir neðan... ég er ánægð með hve margir hafa hug á að fara aftur til Eyja! Maður er bara orðinn spenntur að sjá hvernig þetta verður allt eftir 10-15 ár þegar flestur verða búnir að læra og svona! (0:

En já, lítið að gerast hjá mér nema bara að tíminn líður og það styttist hratt í prófin. Það fyrsta er 29. apríl og það síðasta verður 12. maí. Ég er bæði spennt og kvíðin. Er bara komin í upplestrar frí og ætti í þessum skrifuðu orðum að vera inni í herbergi að læra... en ég fer bara á eftir... (kannast einhver við þetta?) (0;
Ég er komin með vinnu í sumar, ég verð að vinna á leikskólanum "mínum", Maríuborg! Bíð spennt eftir að byrja! Hlakka þvílíkt til að fara að vinna aftur með Beggu og fleiri snillingum sem eru að vinna þarna. Svo ekki sé talað um börnin! Starfsfólkið er nú í þessum skrifuðu orðum úti í Búlgaríu! (Smá öfund!) Ég hefði getað farið með þeim ef ég ætti styrktaraðila sem hefði getað borgað fyrir mig! Þau buðu mér að koma með en það var bara svo seint og ég hefði þurft að borga svo mikið.. svona er lífið! En ég stefni bara á einhverja snilldarferð í haust, til Köben eða e-ð! Kemur í ljós!

En ég hef verið að velta einu fyrir mér... samgöngum á eyjuna fögru (Vestmannaeyjar fyrir þá sem ekki fatta!) eins og svo rosalega margir... og ég hef komist að þeirri niðurstöðu að ég hef ekki áhuga á að fá göng eða ferjulægi í bakkafjöru... Ég vil ekki göng vegna þess að það yrði svo langt að keyra í bæinn þá, allavega einhverjir 3 tímar eða eitthvað, og svo er þetta ekki raunhæfur kostur fyrr en eftir svo og svo mörg ár, blablabla! Ég vil ekki ferjulægi í bakkafjöru vegna þess að þá yrði einhver korktappi fenginn til að fara með okkur á milli lands og Eyja. Það er ekki að virka vel á þá sem sjóveikir eru (þó svo að leiðin sé ekki löng!) OG svo er líka soldið langt að keyra í bæinn. Það er jú þangað sem flest okkar vilja fara er það ekki? Sækja hina ýmsu þjónustu og fleira... En hvað vil ég þá? Jú, ég vil stærri og betri Herjólf, betra sjóskip með fjölbreyttari afþreyingu um borð... mér dettur svo sem ekkert í hug nema kannski internet samband eða eitthvað, það væri svo sem hægt að hafa eitthvað fleira og ég læt aðra koma með hugmyndir. Ef skipið er gott sjóskip og veltur ekki mikið eins og þessi Herjólfur gerir sem við erum með núna er hægt að bjóða upp á ýmislegt! Ég hef rætt við skipaverkfærðing (Nonna, frændi hans Jóns Helga) og hann sagði mér að það væri ekki fræðilega hægt að vera fljótari á milli lands og Eyja vegna ölduhæðar og eitthvað. Já, og ég vil líka að það verði FRÍTT í Herjólf! Þá held ég að þetta yrði bara snilld! (0;
Eruð þið ekki sammála mér?

Jæja, bækurnar bíða!

Kveðja, Guðrún bókaormur!

Guðrún María @ 7:30 PM |

* * * * * * * * *

*fimmtudagur, mars 23, 2006*

Jæja, smá könnun:

Þeir sem ætla að flytja til Eyja að námi loknu rétti upp hend (Í kommenti) !!

Nú vil ég fá svar frá ÖLLUM sem skoða þessa síðu!!

Kveðja, Guðrún Eyjastelpa! (0;

Guðrún María @ 3:41 PM |

* * * * * * * * *

*föstudagur, mars 17, 2006*

Þetta er auðvitað bara alveg frábært:

"Jóhannes Jónsson, Jón Ásgeir Jóhannesson og Kristín Jóhannesdóttir hafa gefið Barnaspítala Hringsins þrjú hundruð milljónir króna. Mun Barnaspítalinn fá 60 milljónir á ári í fimm ár frá þeim feðginum. Gjöfin verður meðal annars notuð til að auka hágæsluþjónustu á Barnaspítala Hringsins, ráða starfsfólk og þjálfa það.
Hágæsluþjónusta er stig milli almennrar legudeildar og gjörgæsludeildar og verður starfrækt í nánu samstarfi við gjörgæsludeildir Landspítala - háskólasjúkrahúss. Undanfarna mánuði hafa verið kannaðir möguleikar á því að efla hágæsluþjónustu innan Barnaspítala Hringsins enda sífellt veikari börn sem dvelja á deildum hans. Hágæsla þarf því að vera meiri þegar álag er mest og nauðsyn krefur. Ekki þarf að stofna nýja deild þar sem góð aðstaða er á barnaspítalanum. Öflug hágæsluþjónusta á Barnaspítala Hringsins eykur enn frekar öryggi veikustu barnanna, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Landspítala - háskólasjúkrahúsi."


(tekið af mbl.is, 17. mars 2006)

Ég tek ofan fyrir svona fólki! Maður fær bara næstum gæsahúð og tár í augun og allt! Það eru sko ekki allir sem myndu gera svona sem eiga peninga!

En hvernig ætli það sé svo... þarf ekki spítalinn að borga skatta af þessu og e-ð, kæmi mér ekki á óvart!! Þó að þeir séu búnir að hirða skatta af þessum peningum oft áður! En ég er að vísu ekki með þetta á hreinu svo ég ætla ekki að fara út í þennan pakka!! (0;

Jæja, er búin í verknáminu og er núna að gera verkefni tengt því! Alveg ágætt nema ég nenni ekki að leita af heimildum... Er bara ekki alveg með það á hreinu hvernig ég á að ganga frá þessu og um hvað á að finna heimildir... orðið ansi langt síðan ég gerði heimildaritgerð síðast! Þetta skýrist vonandi þegar ég verð komin almennilega í gang með þetta. Ritgerðin má samt ekki vera meira en 6 bls. með tvöföldu línubil... ég gæti sko skrifað alveg örugglega einhverjar 10-12 síður.

Svo er IDOLIÐ í kvöld, Jón Helgi er að fara á eitthvað Pink Floyd kvöld svo ég ætlaði að bjóða vinkonunum að koma og horfa á það með mér þar sem að fæstar þeirra eru með stöð tvö og ég nennti ekki að horfa á þetta ein... en það kom bara í ljós að það komst engin! Gengur kannski betur næst!

Jæja, ætla að halda áfram með verkefnið!

Bið að heilsa í bil...

Guðrún María @ 3:54 PM |

* * * * * * * * *

*miðvikudagur, mars 15, 2006*

Smá pirringskast!!

Sko, þegar ég skrifaði síðasta blogg þá hrundi bloggið þegar ég var búin að setja það inn og síðan var alveg auð! Svo náði Andri Húgó að redda þessu, en gat bara gert hana eins og hún var alveg upprunalega, svo fór ég inn á template changes og breytti öllum heimasíðunum sem eru úreltar og bætti inn nýjum og e-ð, gerði svo save template changes og þurfti að rjúka út. Svo þegar ég kíkti næst þá hafði EKKERT breyst!! Oohh..!! Þetta er það leiðinlegasta við þessa heimasíðu það er að vesenast í þessu heimasíðu- tengla dóti! Allt of mikið vesen!

Svo er það annað, af hverju í andsxxxxum gefur fólk ekki stefnuljós hérna í Reykjavík!! Sérstaklega ekki þegar það er að fara útúr hringtorgi! Ég gjörsamlega þoli það ekki þegar mar þarf alveg að stoppa, og svo beygir fólk þannig útúr hringtorginu að mar hefði alveg getað haldið áfram EF manneskjan hefði hunskast til að gefa stefnuljós!! Þvílíkt tillitsleysi!!

Og eitt enn! Þetta bensínverð er komið uppúr öllu valdi!! Og það bara hækkar og hækkar! Ég var á leiðinni að taka bensín í gær, og af því að ég gerði það ekki fyrr en um kl 11 í gærkvöldi þá var líterinn kominn í rúmar 111 krónur, en var rúmar 110 eða e-ð fyrr um daginn!! Og Íslendingar láta bara ríxx sér í rxxxgatið og halda kjafti! Það vantar all hörku þegar kemur að einhverju svona! Það þýðir ekkert að fara með e-r spjöld niður í bæ! Það þarf bara að GERA eitthvað róttækt!! Tökum frakkana sem fyrirmyndir í þessum efnum! Svo er bara verðlag á Íslandi MJÖG hátt þegar litið er á alla hluti! Mar þarf næstum að leggja fyrir ákveðinn pening á mánuði ef mar ætlar að kaupa sér almennilega eða flotta skó! Ég bara vil ekki styðja svona rassarxxxxxar og er að spá í að panta mér ferð til Köben í Ágúst bara til að versla á "sanngjörnu" verði!

Jæja, ég var nú með e-ð meira sem ég var að pirrast yfir... en ég var svo lengi að skrifa þetta að eg er búin að gleyma því!! Ég set það bara inn seinna!

(Þetta blogg ætti kannski meira heima á síðunni hjá hvítu voninni! Hehe...)

Jæja, bið að heilsa í bili!

Guðrún María @ 1:07 PM |

* * * * * * * * *

*sunnudagur, mars 12, 2006*

Jæja... Ég nenni varla að skrifa neinar fréttir... enda held ég að það sé ekki mikið að frétta. Hmm.. Ég er bara í skólanum og Jón Helgi að vinna... ég er reyndar líka að vinna e-ð, eitt kvöld í viku í sjoppunni og 4 klst. annan hvern laugardag og svo er ég að skúra í u.þ.b. 1 klst. á dag á leikskólanum mínum, Maríuborg. Ég verð líka að vinna þar í sumar og ég hlakka þvílíkt til, alger snilld að vera að vinna á leikskóla á sumrin. Tala nú ekki um ef það er gott veður! Ahh... Verð auðvitað líka að vinna í sjoppunni, það er ágætt með. (0;

Já, ég er búin með 5 daga af 7 í verknáminu mínu... get ekki sagt að ég hafi mikið kynnst störfum hjúkrunarfræðings.. er bara búin að vera að vinna með sjúkraliðum og ófaglærðum við að skipta á rúmum, skipta á bleyjum á gamla fólkinu, hjálpa því á klósettið og þvo því að neðan! Sé varla hjúkrunarfræðinginn nema á göngunum og í rapporti! Æ, ég veit svosem að ég þarf að kunna þetta... en skil samt eilega ekki alveg af hverju... Hjúkrunarfræðingurinn er meira að sjá um lyfin, skipta á sárum, taka þvag- og saurprufur og hafa yfirumsjón yfir deildinni... Jæja, ég skil þetta örugglega einhverntíman seinna!!

En já, ég er búin að vera að deyja úr hlátri yfir hérna nokkrum vídeó- klippum:

http://www.b2.is/?sida=tengill&id=151593

og

http://www.b2.is/?sida=tengill&id=151766

og


http://www.metacafe.com/watch/72008/video/

Þetta er snilld!!

Jæja, ég held ég láti þetta duga í bili...

Bless í bili...


Guðrún María @ 10:52 PM |

* * * * * * * * *

*mánudagur, febrúar 27, 2006*


Sá þetta á einhverri síðu, ákvað að setja þetta hérna inn!

( ) klesst bíl vinar/vinkonu

( ) stolið bíl (foreldranna)
(X) verið ástfangin/n
( ) verið sagt upp af kærasta/kærustu
(X) verið rekin/n (Því miður!)
( ) lent í slagsmálum
( ) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum
(X) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki
( ) verið handtekin/n
( ) farið á blint stefnumót
(X) logið að vini/vinkonu (ekkert alvarlegt sko!)
(X) skrópað í skólanum
( ) horft á einhvern deyja
( ) farið til Canada
( ) farið til Mexico
(X) ferðast í flugvél
( ) kveikt í þér viljandi
( ) skorið þig viljandi
( ) borðað sushi
( ) farið á sjóskíði
(X) farið á skíði (sem sagt í snjó)
( ) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu
( ) farið á tónleika
(X) tekið verkjalyf
(X) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna
(X) legið á bakinu úti og horft á skýin
(X) búið til snjóengil
(X) haldið kaffiboð
(X) flogið flugdreka
(X) byggt sandkastala
(X) hoppað í pollum
(X) farið í "tískuleik" (dress up)(aðallega með þykjustu fötum!)
( ) hoppað í laufblaðahrúgu (Of amrískt e-ð)
(X) rennt þér á sleða
(X) svindlað í leik
(X) verið einmana
( ) sofnað í vinnunni/skólanum
( ) notað falsað skilríki
(X) horft á sólarlagið (ekki kannski alveg allan tíman sem það er!!)
(X) fundið jarðskjálfta
(X) sofið undir berum himni (Er ekki tekið með í tjaldi?)
(X) verið kitluð/kitlaður
( ) verið rænd/rændur
(X) verið misskilin/n
( ) klappað hreindýri/geit/kengúru
(X) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi
( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
( ) lent í bílslysi
(X) verið með spangir/góm
(X) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni
( ) borðað líter af ís á einu kvöldi
( ) dansað í tunglskininu
(X) fundist þú líta vel út
( ) verið vitni að glæp
(X) efast um að hjartað segði þér rétt til
( ) verið gagntekin/n af post-it miðum (þið vitið - þessum gulu)
( ) leikið þér berfætt/ur í drullunni
(X) verið týnd/ur
(X) synt í sjónum
( ) fundist þú vera að deyja
(X) grátið þig í svefn
(X) farið í löggu og bófa leik
( ) litað nýlega með vaxlitum
(X) sungið í karaókí
( ) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum (við erum að tala um krónur, fimmkalla og tíkalla hérna)
(X) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki
(X) hringt símahrekk (allavega hjálpað til við að velja símanúmerið!)
(X) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér
(X) stungið út tungunni til að ná snjókorni
(X) dansað í rigningunni
(X) skrifað bréf til jólasveinsins
( ) verið kysst/ur undir mistilteini (gerist bara í bíómyndum)
( ) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um (Er yfirleitt sofandi á þeim tíma!)
(X) blásið sápukúlur (Bara síðasta sumar, rosa stuð!)
( ) kveikt bál á ströndinni! (púff, of amrískt e-ð)
( ) komið óboðin/n í partý
( ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í
(X) farið á rúlluskauta/línuskauta (Bæði!)
(X) hefur einhver óska þinna ræst
( ) farið í fallhlífastökk
( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig
( ) gert þig af þvílíku fífli fyrir framan fullt af fólki
( ) kysst einhvern af sama kyni (sonna meiri en mömmu koss)
( ) farið nakin í sund
( ) rennt þér á grasinu á snjóþotu
( ) verið sett í þvílíkt straff
( ) logið fyrir vini þína
( ) liðið yfir þig
(X) fengið sms frá einhverjum sem þú veist ekkert hver er og byrjað að spjalla við manneskjuna
(X) eyðilagt eitthvað sem vinur þinn átti ;0(

Jæja... Finnst þetta bara ágætt í bili... Kannski koma fréttir fljótlega... ef það er e-ð að frétta!

Bið að heilsa í bili!




Guðrún María @ 9:37 PM |

* * * * * * * * *

*föstudagur, desember 23, 2005*

Jæja, þetta verður síðasta færslan mín... allavega á þessu ári þar sem ég er að fara til Eyja á morgun og verð fram yfir þrettánda býst ég við. Þar sem ég gisti hjá ömmu minni þá verð ég ekki með tölvu við höndina og hvað þá internet! (0;

En já, ég er búin í prófunum... gekk svona.. ásættanlega held ég. Kemur í ljós í kringum 10. janúar 2006! Ég ætla bara að REYNA að salta þetta þangað til, þ.e. reyna að gleyma þessu! Svo er maður bara búinn að vera á harðahlaupum og með allt á síðasta snúningi og bara vona að ég hafi ekki gleymt neinum eða neinu... Alveg merkilegt að maður dettur í þessa gryfju ár eftir ár að vera á síðasta snúning korter fyrir jól með allt saman... svo segir maður alltaf svona 19. des.: "þessu ætla ég ekki að lenda í fyrir jólin á næsta ári!" En svo endurtekur sagan sig!! Klukkan er til dæmis núna að slá í eitt á aðfararnótt Þorláksmessu og ég er svona rétt að leggja lokahönd á það sem þarf að gera áður en ég legg af stað... en er ekki byrjuð að pakka niður!! Jæja, ég segi bara og skrifa, Gleðileg jól allir saman, hafið það nú bara sem allra, allra best yfir hátíðirnar!!! Hittumst vonandi hress á nýja árinu!

Jóla- og nýárskveðjur
Guðrún María!

Guðrún María @ 12:44 AM |

* * * * * * * * *

Powered by Blogger